Ferill 698. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.









Þingsályktun



um framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2023.


________




    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að vinna að framkvæmd fjögurra ályktana Vestnorræna ráðsins sem samþykktar voru á ársfundi ráðsins 29.–30. ágúst 2023, um hafið sem matarkistu okkar (nr. 1/2023), um vestnorrænar næringarráðleggingar (nr. 2/2023), um að draga úr matarsóun og auka matvælaöryggi (nr. 3/2023) og um möguleika á auknu samstarfi í tengslum við lýðskóla (d. efterskole) (nr. 4/2023).



_____________







Samþykkt á Alþingi 30. apríl 2024.